Markaðir í evrópu heldur að jafna sig

Á meðan ekkert lát virðist vera á hruni hlutabréfa í Kína eru markaðir í Evrópu að jafna sig eftir heldur myrkan mánudag í gær. Erfiðleikarnir í Asíu virðast þannig hafa smitast yfir til Evrópu án mikilla einkenna.

Sérfræðingar meta það svo áhrif hræringanna í Asíu muni ekki hafa kollsteypuáhrif í Evrópu og í Bandaríkjunum, en viðskiptalífið muni þó taka eftir því sem á gengur, enda enginn eyland lengur í alþjóðavipskiptum.

Þeir benda á að ferðaþjónusta og útflutningsreinar hér á landi geti fundið fyrir minni fjárráðum kaupenda á fjarlægum mörkuðum sem ekki einasta hafa mátt þola hrun á hlutabréfum heldur og á hrávöru, en sem dæmi má nefna að olíutunnan fór niður í 38 dali í New York í gær. 

Almennt virðist markaðir utan Asíu hafa tekið heldur við sér eftir gærdaginn. Þannig hækkaði gengi hlutabréfa í fyrstu viðskiptum í kauphöllum Evrópu í morgun. 

Hlutabréfavísitalan í Sjanghæ féll um 8,5 prósent í gær, sem var mesta lækkun hennar á einum degi síðan 2007, og sú þróun hélt áfram í morgun. Við lok viðskipta í Sjanghæ í morgun hafði hlutabréfavísitalan lækkað um 7,6 prósent. Á markaðnum í Shenzen nam lækkunin sjö prósentum.

Í Japan lækkaði Nikkei-vísitalan um fjögur prósent og hefur ekki verið lægri síðan 10. febrúar. Annars staðar í Asíu var mun meira jafnvægi í viðskiptum í nótt eftir mikið verðfall í gær og í Hong Kong hækkaði gengi hlutabréfa um 0,7 prósent.

Þrátt fyrir lækkunina í Kína virðast fjárfestar bjartsýnni í Evrópu ef marka má fyrstu viðskipti eftir opnun kauphalla í álfunni. Þannig hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,6 prósent og þýska DAX-vísitalan og hins franska CAC hækkuðu um 1,4 prósent. Í Grikklandi varð hækkunun mun meiri í fyrstu viðskiptum eða yfir fimm prósent.