Markaðir í asíu í afturbata

Hlutabréfamarkaðir í Asíu tóku heldur við sér þegar þeir voru opnaðir í morgun og við lokun markaða hafði vísitalan í Sjanghæ í Kína hækkað um 5,3%. Þá hefur vísitalan í Hong Kong hækkað um 3% í dag en mörkuðum þar var lokað nú klukkan 08:00 að íslenskum tíma. 

Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði um 1,5% og vísitalan í Ástralíu um 1,4%. Þá varð einnig lítils háttar hækkun á mörkuðum í Suður-Kóreu. 

Þessi hækkun á mörkuðum í Asíu kemur eftir mikla lækkun þar síðustu daga sem hafa valdið titringi um allan heim, en áfallið reið fyrst yfir á mánudag og smitaðist strax yfir í aðra heimshluta.

Hækkunin í Asíu í dag kemur í kjölfar mikillar hækkunar á mörkuðum á Wall Street í New York í gær, en Dow-vísitalan hækkaði þá um 619 stig að því er fram kemur á vef CNN.