Mark Zuckerberg forstjóri sagðist í yfirheyrslu fyrir bandarískri þingnefnd í dag taka persónulega á sig ábyrgð á því að greiningarfyrirtækinu Cambridge Analytica tókst að komast yfir upplýsingar af Facebook-síðum tugmilljóna notenda miðilsins. Hann endurtók jafnframt afsökunarbeiðni sína vegna málsins og lofar endurbótum á kerfi Facebbok.
Hægt er að fylgjast með yfirheyrslunni hér í beinni.