Aktívistinn og fjölmiðlakonan María Lilja Þrastardóttir safnaði saman ferðagjöfum fyrir 100 þúsund krónur og notaði ferðagjafirnar til að kaupa vörur fyrir hælisleitendur hér á landi.
Hún greinir frá þessu á Twitter:
„Ég elska elska elska fólk! Við vorum að klára innkaup fyrir 100.000 kr fyrir flóttafólk í boði íslenska ríkisins,“ segir hún og bætir við: „HAHH! Feis á þau!“
Ferðagjöfin frá því síðasta sumar rann út á miðnætti, er nú ný komin í gagnið. Auglýsti hún eftir ónotuðum ferðagjöfum á Twitter. „Ég ætla að rölta á N1 rétt fyrir miðnætti og kaupa mat og nauðsynjar handa hælisleitendum á vergangi fyrir nokkrar ferðagjafir sem mér áskotnaðist.“
Eins og áður segir söfnuðust 100 þúsund krónur og var því hægt að kaupa inn mikið magn á bensínstöð N1:
„Hreinlætisvörur, veiðistöng(!), allskonar matur og hlý föt eru á meðal þess sem við hjónin náðum að kaupa á N1 fyrir ferðagjafir.“