María fékk átakanleg skilaboð: „Ég get ekki látið þetta koma fyrir systur mína“

Íslendingar hafa ekki farið varhluta af því sem á sér stað í Afganistan. Talibanar eru nú að taka yfir landið og innleiða öfgatrú inn í hvern krók og kima samfélagsins.

María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, fékk átakanleg skilaboð frá vini sínum frá Afganistan.

„Hann er ráðalaus á Íslandi á meðan fjölskyldan hans, heimabærinn og heimaland er í algjöru uppnámi. Við getum ekki einu sinni reynt að setja okkur í sporin en við getum hjálpað. Ekki loka augunum!,“ segir hún á Twitter.

Í skilaboðunum segir:

„Ég á unga systur. Talibanarnir hafa beðið fólk um að setja fána á heimili sín til að gefa til kynna hvar ungar stelpur eiga heima svo þeir geti gift þær meðlimum Talibana,“ segir í skilaboðunum. „Ég sagði þeim að gera ekkert. Þeir eru búnir að taka yfir borgina. Ég get ekki látið þetta koma fyrir systur mína.“