Formannsefnin tvö, Sigmundur og Sigurður Ingi töluðu á svipuðum nótum og í gær, þegar Sigmundur flutti klukkustundar formannsræðu og Sigurður Ingi sína korters framsögu. Það eykur enn á spennuna á flokksþinginu að ræða Sigurðar Inga var ekki send beint út eins og áætlað hafði verið. Tæknileg mistöku ku hafa orðið til þess að slökkt var á útsendingunni eftir að Sigmundur lauk sér af og Sigurður Ingi fór því ekki í loftið.
Þetta er eitt af því sem mun sitja eftir í botnfalli brostinna tryggðarbanda flokksmanna sem munu þurfa að hafa sig mikið við að þjappa sér saman og láta gróa um heilt eftir þetta þing og það sem á undan er gengið.
Sigurður Ingi talaði líkt og fyrr um traustið sem þyrfti að endurheimta og vísar þar til formannsins. Sigmundur Davíð segist ætla að þjappa flokknum saman og verða betri maður en áður. Þar fór fyrir auðmýkt hjá formanninum en helst talar Sigmundur fyrir yfirburðum Framsóknarflokksins á meða Sigurður Ingi virðist áhyggjufyllri yfir trúnaðarbrestinum sem hefur orðið í forystu flokksins og jafnvel gagnvart honum af hendi hins stjórnarflokksins.