Í kvöld verður sýndur annar þátturinn af Bókahorninu, nýjum þætti á Hringbraut í umsjón Sigmundar Ernis. Í þáttunum eru bækur ræddar í þaula, eins og nafnið gefur til kynna.
Gestir þáttarins í kvöld verða Þóra Hjörleifsdóttir, Þorvaldur S. Helgason, Ragna Sigurðardóttir og Gréta Sigurðardóttir.
Þóra Hjörleifsdóttir gaf á dögunum út fyrstu skáldsögu sína, Kviku. Kvika fjallar um mörk og markaleysi í sambandi ungs pars á nístandi sáran og ljóðrænan máta.
Þorvaldur S. Helgason gaf á dögunum út ljóðabókina Gangverk, sem er lýst sem heillandi ljóðabók eftir ungt skáld með merkilega lífsreynslu að baki. Leiðarstefið í henni sé tungumál hjartans, á forsendum bæði læknavísindanna og ástarinnar.
Ragna Sigurðardóttir þýddi bókina Þar sem ekkert ógnar þér, glæpasögu eftir hina hollensku Simone van der Vlugt.
Gréta Sigurðardóttir skipuleggur bókahátíðina Júlíönu, sem verður haldin í Stykkishólmi í sjöunda sinn um næstu helgi.
Bókahornið hefst klukkan 20:00 í kvöld.
Stikla fyrir þáttaröðina: