Minnihlutinn hélt um klukkustundar skeið uppi málþófi á Alþingi í morgun undir liðnum fundarstjórn. Meirihlutinn segir að sér sé misboðið vegna átakanna en minnihlutinn segir að ekki sé neinu að treysta og vill ræða framhaldið nánar og kjördag. Deiluefnið er einkum dagskráin fram undan á þinginu og hvort eða hvenær verði kosið í haust.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingar, sagði að ekki virtist sem það ætti að klippa eitt löggjafarþing af tímabilinu eins og Bjarni Benediktsson hafi lofað þjóðinni. Ef svo ætti að verða kosningar í byrjun september en talsmenn stjórnar ræði ýmist október eða annað og þá aðeins ef mál færu í gegn. \"Á að svíkja það?\" spurði varaformaður Samfylkingarinnar.
Ólín Þorvarðardóttir, Samfylkingu, telur að verið sé að hanna atburðarás, svíkja loforð um kosningar í haust með því að minnihlutanum verði kennt um að tefja vond mál. Þess vegna sé ekki gefin dagsetning um kjördag þótt almenningi hafi verið gefið loforð.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir málflutning minnihlutans makalausan, hann sé óheiðarlegur eins og stjórnarandstöðunnar sé von og vísa.
Uppskar Jón með orðum sínum andúð Roberts Marshall, BF, sem sagði skýringu vandans þá að ríkisstjórninni væri ekki treystandi. Makalaust væri að Jón Gunnarsson sakaði fólk um óheiðarleika eins og hann væri handhafi sanmleikans \"margstyrktur af vertökum og útgerðarfyrirtækjum\" eins og Róbert orðaði það.