Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar giftu sig í Palm Springs árið 1996. Þau bjuggu síðan í Los Angeles í um sextán ár. Hún kom til Íslands á dögunum til að fylgja eftir nýjustu mynd sinni, heimildamyndinni House of Cardin sem sýnd var á RIFF. Þá er Margrét að framleiða kvikmyndina Kill the Poet en hún fjallar um samband Steins Steinars við listakonurnar Louisu Matthíasdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Skartar myndin heimsfrægum leikurum.
Margrét er í helgarviðtali í DV sem kom út í dag. Þar opnar hún sig um hjónabandið. Segir Margrét að líf þerra í Bandaríkjunum einkennist ekki af glamúr.
„Lífið mitt er ótrúlega „döll“ og einfalt. Ég vakna yfirleitt fimm á morgnana. Ég segi ekki að ég rjúki á fætur alveg strax heldur byrja á því að skoða tölvupóst og pæla aðeins í hlutunum [...]
Við förum á veitingastaði og mjög mikið í bíó. Við förum í göngutúr á kvöldin og tennis og snemma að sofa. Þetta er ótrúlega glatað,“ segir Margrét hlæjandi.
Þá segir Margrét að lykillinn að farsælu hjónabandi þeirra Óttars felist í hversu óhrædd Margrét hafið verið að leita sér sálfræðihjálpar í gegnum tíðina.
„Mín skoðun er sú að við erum með ranghugmyndir um hjónabönd af því að ég held að við gerum of miklar kröfur á hinn aðilann og höldum oft að það sem við fáum næst sé miklu betra. Ég er mikið fyrir það að fólk sé í þerapíu, fyrst fyrir sjálft sig, því allar breytingar sem verða á lífi manns gerast innra með manni.
Ég hitti mjög ung alveg stórkostlegan sálfræðing sem breytti lífi mínu. Ég fór í meðferð mjög ung, hætti að drekka ung og fór svo í þerapíu. Það var alveg stórkostlegt. Ég vildi að allir gerðu það. Flestir bera þetta fram á fimmtugsaldur og allt í einu byrja hlutir að springa.“