Margrét sendir út neyðarkall: „Fyrirtæki þora einfaldlega ekki að auglýsa hjá okkur“

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsíðunnar Fréttin.is, sendi út neyðarkall á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi vegna vefsíðunnar Fréttin.is en hún segir erfiðlega ganga að fá fyrirtæki til að auglýsa á vefnum.

„Það gengur illa að fá fyrirtæki til að auglýsa hjá okkur, þrátt fyrir miklar og stöðugar heimsóknir á síðuna, en það virðist ekki breyta neinu varðandi að fyrirtæki þora einfaldlega ekki að auglýsa hjá okkur vegna öfgafólks sem að ofsækir viðskiptavini, og þessir fáu sem hafa auglýst hjá okkur hafa borist hótanir frá einstaklingum sem ganga hart fram í að stöðva málfrelsið,“ segir Margrét meðal annars í færslu sinni.

Margrét segir fyrirtækið hafa verið í svo gott sem sjálfboðaliðastarfi í heilt ár. Þau hafi þó fengið eina milljón króna í upphafi sem hafi verið greitt til blaðamanna á miðlinum ásamt lausapennum.

„Ég sjálf hef ekki enn náð að greiða mér laun sem er aukaatriði því ég er fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa náð að koma orðinu út og finnst heilmikið afrekað í gegnum Fréttin.is frá því var stofnað fyrir ári síðan.“

Að sögn Margrétar hefur Fréttin.is sannað gildi sitt og sýnt að þörf sé á óháðum fjölmiðlum sem þora að skrifa um það sem meginstraumsmiðlar þegja um.

Hún segist tilneydd til að hætta með miðilinn fáist ekkert fjármagn, sjóðurinn sé að tæmast og hún vilji ekki skulda fólki fyrir góð störf.

Færslu Margrétar má sjá í heild sinni hér að neðan.