Margrét og dóttir hennar sektaðar af lögreglu: „Ég man ekki betur en að Bjarni Ben hafi ekki fengið sekt“

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri og eigandi Fréttin.is, hefur fengið sekt upp á 100 þúsund krónur vegna meints sóttvarnarbrots. Önnur eins sekt var send á dóttur hennar.

„En þannig er mál með vexti að þegar við komum heim frá Tenerife í júlí þá reyndum við ítrekað að komast í PCR próf þar úti en hvorki gekk að panta tíma á netinu það fyrsta sem þau áttu laust var eftir 2-3 vikur þannig við fórum á spítalann til að fá þetta í gegn en fengum þau svör að ekki væri laust fyrr en í næstu viku nokkrum dögum eftir flugið okkar heim,“ segir Margrét í færslu á Stjórnmálaspjallinu.

„Við tókum þetta allt uppá myndband til að vera með sannanir fyrir þessu og afhenti ég lögreglunni upptökuna uppá Leifsstöð þannig augljóst að þetta var ekki gert af ásetningi og við fórum í tvö test við heimkomu sem reyndust neikvæð.“

Margréti er misboðið að hún og dóttir hennar séu sektaðar en ekki ráðherrar ríkisstjórnarinnar. „Nú er mér soldið misboðið að sjá dómsmálaráðherra brjóta sóttvarnarreglur sjálf og spyr ég mig hvort Áslaug verði sektuð eins og ég og barnið mitt og ég man ekki betur en að Bjarni Ben hafi ekki fengið sekt fyrir sitt brot um síðustu jól. Gildir ekki sama um alla í þessu þjóðfélagi, sýnist ekki, það er ekki sama að vera Jón og séra Jón á Íslandi?“ Skal því haldið til haga að hvorki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir né Bjarni Benediktsson hafa brotið sóttvarnarreglur.