Margrét les dv pistillinn: „hjarta­lausir hræsnarar“

Margrét Friðriksdóttir, frumkvöðlafræðingur og fyrrverandi frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, sendir DV kaldar kveðjur í færslu inni á Facebook-hópnum Stjórnmálaspjallið.

Á kvöldi Þorláksmessu birtist frétt á vef DV sem ber fyrirsögnina „Margrét vekur hörð viðbrögð: Tengir flóðbylgjuna þar sem hundruð fórust við jólin og reiðan guð“. Þar er fjallað um ummæli sem Margrét lét falla í áðurnefndum Facebook-hóp, Stjórnmálaspjallinu, sem Margrét stjórnar.

Í fréttinni er haft eftir Margréti að flóðbylgjan sem reið yfir Indónesíu á dögunum hafi e.t.v. eitthvað að gera með reiði guðs. Í fréttinni er jafnframt haft eftir Margréti ummæli í umræðum við færsluna:  „Það borgar sig ekki að storka Guði eða gera lítið úr honum ;).“ Fréttablaðið greindi frá því í gær að tala látinna eftir flóðbylgjuna er komið vel á 500 manns.

Í gær setti Margrét svo inn færslu á títtnefndum Facebook-hóp þar sem hún segir að fréttin sé tekin úr samhengi og til þess ætluð að gera lítið úr sér. „Til að toppa aumingjaskapinn þá er notuð mynd úr frétt sem tekin var við leiði móður minnar rétt eftir andlát hennar og myndin zoomuð svo mjög að reynt er að láta mig líta út eins illa og mögulegt er og er fyrir löngu búin að senda DV mynd sem þeir mega nota ef þeir ætla sér að fjalla um mig þannig brotaviljinn er einbeittur og einnig hef ég beðið um að haft sé samband áður en búin er til frétt um mig annað er dónaskapur,“ skrifar Margrét.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/margret-les-dv-pistillinn-hjartalausir-hraesnarar