Margrét Friðriksdóttir stýrir Stjórnmálaspjallinu á Facebook. Hún hefur á síðustu árum verið viðloðandi hinar ýmsu stjórnmálahreyfingar en hefur í seinni tíð vakið athygli og úlfúð fyrir að vara við fjölmenningu. Hún er kristileg hægrimanneskja og Jesú er leiðtogi hennar í lífinu. Margrét ákvað fyrir þremur mánuðum að setja tappann í flöskuna, kveðja Bakkus og segja skilið við vínandann fyrir fullt og allt.
Margrét ætlaði að hætta neyslu áfengis á síðasta ári eftir að hafa ráðist að Semu Erlu Serdar fyrir utan veitingastað á Grensásvegi en hefur nú blessunarlega tekist að ná markmiði sínu. Hún þakkar SÁÁ og segir samtökin eiga mikinn þátt í að henni hafi tekist að snúa Bakkus niður. Margrét segir:
„Í dag eru komnir 3 mánuðir eða 90 dagar frá því ég tók þá ákvörðun að hætta allri neyslu áfengis og leitaði ég til samtakanna til að fá aðstoð með það, því ég hafði heyrt svo frábæra hluti um samtökin og fagfólkið sem vinnur þar, þetta er ákvörðun sem ég mun aldrei sjá eftir og ávalt vera þakklát fyrir.“
Þá segir Margrét að hún sé glöð og hafi aldrei liðið eins vel á ævinni. Hún sé einnig að takast á við nýjar áskoranir og allt í lífi hennar sé auðveldara, innihaldsríkara og skemmtilegra, án áfengis. Margrét segir:
„ ... fyrirlestrarnir og prógrammið eru svo fræðandi og upplýsandi, tala nú ekki um sjálfskoðunina sem þessir fagaðilar ná að kveikja hjá manni. Ég sagði að gamni mínu um daginn að mér finnist að allir ættu að fara í meðferð því allir hafa gott af svona sjálfsskoðun og innri vitund og vera meðvitaðir um orsakir og afleiðingar áfengisneyslu sem og allri vímuefnaneyslu.“ Þá segir Margrét að lokum:
„Í dag er ég frjáls eins og fuglinn, enginn kvíði, enginn bömmer og engin eftirsjá. Guð blessi samtökin SÁÁ og allt það góða fólk sem vinnur þar. Amen.“