Margrét: ég vil vera þorsteinn már

\"Að lifa að mestu utan krónuhagkerfisins eru mikil forréttindi sem fáir njóta og áhyggjur af íþyngjandi vaxtagreiðslum eru vart að halda fyrir þeim vöku,\" skrifar atvinnurekandinn Margrét Kristmannsdóttir, kaupmaður í PFaff í nýjasta pistli sínum á Hringbraut.

\"Það hendir mig því stundum eins og væntanlega aðra,\" skrifar hún áfram \"að ég læt mig dreyma um að tilheyra þessum forréttindahópi. Þetta gerist einkum þegar ég ligg andvaka og er ég svíf stundum inn í draumaheiminn hefur það gerst að ég óski mér að vera Þorsteinn Már.  Fram til þessa hefur sú ósk hins vegar bráð af mér þegar ég vakna.\"

Þessi grein Margrétar fjallar um hagkerfin tvö á Íslandi, annars vegar almenning og venjuleg fyrirtæki sem verða að sæta sig við hávaxtakrónu - og svo útvalin útflkutningsfyrirtæki og eigendur þeirra sem njóta lágra vaxta annarra gjaldmiðla. Staðan á Íslandi sé einmitt svona: \"Til að taka erlent lán og njóta eðlilegs vaxtaumhverfis þurfa tekjur fyrirtækja að vera að mestu í erlendri mynt.  Það á einkum við fyrirtæki í útgerð, orkusölu eða farþegaflutningum svo dæmi séu tekin.   Fæstum fyrirtækjum stendur hins vegar til boða að taka erlend lán og verða að taka lán í íslenskum krónum.   Þegar þessir tveir ólíku vaxtaheimar eru settir í excel birtist hrópandi ósanngirni og ekki frá því að eitt andartak blóti maður því að vera bundinn á klafa „stöðugasta og sterkasta gjaldmiðils í heimi“.\"  

Margrét bendir á að draumurinn um að lifa og taka lán í lágvaxta gjaldmiðli án verðtryggingar lifi hins vegar góðu lífi: \"Handa okkur öllum – ekki bara sumum.  Við viljum einfaldlega gjaldmiðil og vaxtakjör sem venjuleg heimili og fyrirtæki standa undir.  Þjóðaratkvæðagreiðsla um afnám verðtryggingar mun því miður engu breyta um ofurvexti á óverðtryggðum vöxtum sem verður þá eini valkosturinn.  Þeir vextir eru í dag um 8% á meðan þeir eru um 2% í nágrannalöndunum.\" 

Og niðurstaða kaupmannsins er býsna skýr: \"Án verðtryggingarinnar verður  vaxtamunurinn hins vegar öllum ljós – krónan verður þá í nýju fötum keisarans.   Hún verður berrössuð, berskjölduð og áfram rándýr.\"