Margra ára tukthús bíður parsins

Nokkurra ára fangelsi bíður að öllum líkindum íslensks pars sem handtekið var í Brasilíu milli jóla og nýárs verði þau sakfelld, en í fyrri málum af svipuðum toga hefur dómsvaldið ytra ekki sýnt neina miskunn.
 

Parið var handtekið á móteli í borginni Fortaleza í norðurhluta Brasilíu og er grunað um að hafa ætlað að smygla fjórum kílóum af kókaíni út úr landinu. Karlinn er 26 ára en konan tvítug, að því er fram kemur í samantekt RÚV um málið nú um helgina. Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum voru fíkniefnin falin í fölskum botni í ferðatöskum, tveimur flöskum og tveimur smokkum.

Fram kom í fréttum RÚV í fyrradag að utanríkisráðuneytið staðfestir að parið hafi verið handtekið og að ættingjar þess hafi verið í sambandi við ráðuneytið. Ísland er ekki með ræðismann í Fortaleza eða nágrenni.

Ef litið er á mál annarra Íslendinga sem handteknir hafa verið með fíkniefni í Brasilíu má gera ráð fyrir að parsins bíði nokkurra ára fangelsi verði þau sakfelld eins og segir í fyrrnefndri frétt á vefnum sem ber saman málið við fyrri smygltilraunir af svipuðum toga. Árið 2009 var íslenskur karlmaður handtekinn með 6 kíló af kókaíni í Brasilíu, hann hlaut ekki endanlegan dóm þar sem hann veiktist og var sleppt af mannúðarástæðum og kom hann til Íslands aftur í árslok 2013. Árið 2006 var íslenskur karl tekinn með 12 kíló af hassi og var hann dæmdur í 6 ára og 8 mánaða fangelsi. Árið 2007 var annars Íslendingar tekinn í Brasilíu með 2,5 kíló af kókaíni og fékk hann tæplega 4 ára dóm og árið 2006 var íslenskur karlmaður dæmdur í 3 ára fangelsi eftir að hafa verið tekinn með 2 kíló af kókaíni og þótti hafa sloppið vel að mati skrifstofustjóra í utanríkisráðuneytinu, því hámarksrefsing fyrir slíkt brot væri 12 til 15 ár. Þá var Íslendingur dæmur í 22 ára fangelsi í Brasilíu árið 2012 vegna smygls á um 50 þúsund e-töflum.