Aðeins sólarhring eftir að Katrín Jakobsdóttir upplýsti í gær að hún hygðist ekki bjóða sig fram til forseta Íslands birtir Fréttablaðið glænýja könnun sem leiðir í ljós að Katrín nýtur langmesta fylgisins sem nýr forseti Íslands. Í miðri könnun blaðsins barst yfirlýsing Katrínar. Hefði því stuðningur við hana væntanlega reynst enn meiri en ella ef yfirlýsingin hefði ekki borist, Af þeim sem hafa gefið skýr svör um þátttöku í slagnum um Bessastaði hefur Vigfús Bjarni Karlsson mest fylgi.
25 prósent, þeirra sem taka afstöðu vilja að Katrín verði næsti forseti Íslands. Tólf prósent vilja Vigfús Bjarna Albertsson sem næsta forseta og ellefu prósent myndu vilja sjá Ólaf Ragnar Grímsson áfram í embætti þótt hann hafi sagt að hann hafi ekki áhuga á því.
Í könnun Fréttablaðsins kemur fram að fimm prósent nefna Andra Snæ Magnússon, 4 prósent Davíð Oddsson, þrjú prósent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og 2 prósent nefna Össur Skarphéðinsson og Ólaf Jóhann Ólafsson. Eitt prósent nefnir Höllu Tómasdóttur. 37 prósent nefndu einhvern annan en þá níu sem nefndir voru í könnuninni.
Spurt var: Hvern viltu sjá sem næsta forseta Íslands?