Margir veðurtepptir í vitlausu veðri

Líkur eru á að ekkert verði flogið á a.m.k. sumum fugleiðum innanlands næsta sólahringinn. Þannig er ekki gert ráð fyrir að neinar flugsamgöngur verði milli Reykjavíkur og Akureyrar fyrr en síðdegis á morgun.

Ástæðan er hvassur vindur. Ljóst er að veðrið mun hafa áhrif á ferðalög margra og þeir sem hyggjast aka milli Akureyrar og Reykjavíkur þurfa að taka áhættu.

Gert er ráð fyrir mikilli veðurhæð í dag en um leið hlýnar og hlánar upp á hæstu fjallvegi.  Hviður eru nú á Kjalarnesi 30-40 m/s og eins undir Hafnarfjalli en lægir heldur um stund um hádegi. Hvessir mjög eftir miðjan daginn. Spáð er ofsaveðri og meðalvindi um og yfir 30 m/s um norðvestanvert landið. Hviður þá 40-50 m/s undir Hafnarfjalli frá því um kl. 16.

\"Eftir kl. 17-18 verður hættulega hvasst af suðri upp á öll ferðalög að gera, allt frá Hvalfirði vestur úr og norður í Eyjafjörð.  Gengur ekki niður fyrr en í nótt,\" segir á vef Vegagerðinar og er haft eftir veðurfræðingi.

Éljagangur er á köflum á Vesturlandi og sums staðar nokkur hálka eða snjóþekja en Fróðárheiði er lokuð. Á Vestfjörðum er víðast hálka eða snjóþekja og allvíða él. Þungfært er á Innstrandavegi.

Vegir á Norðurlandi vestra eru víða auðir. Éljagangur er á Öxnadalsheiði og austur yfir Fljótsheiði og þar er því nokkur hálka. Hálka er á Mývatnsöræfum.