Þegar tekjublað Frjálsrar verslunar er skoðað kemur í ljós að margir þeirra sem settu svip sinn á lista blaðsins yfir hæstu tekjur einstaklinga fyrir nokkrum árum hafa horfið af listunum vegna þess að þeir hafa flutt lögheimili sín til útlanda. Þeir greiða því ekki lengur skatta á Íslandi og rata því ekki inn á þessa lista.
Dæmi um áberandi Íslendinga sem voru oft meðal hæstu skattgreiðenda á Íslandi, einkum á árunum fyrir hrun en hafa nú horfið á braut:
Sigurður Einarsson, Einar Sveinsson, Ólafur Ólafsson, Hannes Smárason, Hreiðar Már Sigurðsson, Andri Már Ingólfsson, Ingólfur Helgason, Björgólfur Thor Björgólfsson, Skúli Mogensen, Árni Hauksson, Þórarinn Ragnarsson og Jón Sigurðsson.