Launatekjur fólks árið 2014 eru mjög til umræðu þessa dagana í kjölfar útgáfu tekjublaðs Frjálsrar verslunar og samantektar DV á tekjum fólks skv. skattskrám sem komu út í síðustu viku.
DV nálgast verkefnið með nokkuð öðrum hætti en FV sem er brautryðjandi á þessu sviði. DV fer með lista sína alveg niður á botninn og sýnir einnig lágar tekur fólks í einstökum hópum. Það getur verið áhugavert þegar um þekkt og fyrirferðarmikið fólk er að ræða.
Viðbrögð lesenda geta verið þau að um skattsvik sé að ræða en það þarf alls ekki að vera þannig. Fólk getur haft góð fjárráð vegna eigna og eignatekna þó það hafi ekki miklar launatekjur sem greiddur er tekjuskattur af. Fleira getur haft áhrif. Þetta ber að hafa í huga þegar litið er á meðfylgjandi lista yfir afar lágar launatekjur sem þekktir Íslendingar töldu fram á mánuði árið 2014 og getur að líta í tekjublaði DV:
Guðfinnur Halldórsson bílasali ……………………………..137.124
Gunnar Þ. Andersen fyrrv. forstjóri FME …………….…....144.853
Manúela Ósk Harðardóttir fatahönnuður ……………. 5.208
Ásdís Rán Gunnarsdóttir athafnakona …………………. 7.986
Gunnlaugur Jónsson olíuborunarfrumkvöðull …… 175.000
Gunnar Hjaltalín löggiltur endurskoðandi …………. 152.056
Þorsteinn Haraldsson löggiltur endurskoðandi ….. 72.446
Magnús Leopoldsson fasteignasali ……………………. 198.116
Karl Steingrímsson í Pelsinum ……………………………378.036
Árni Hauksson fjárfestir ………………………………… 216.025
Þorsteinn Hjaltason skattakóngur 2011 og 2012 … 146.104
Bjarni Ármannsson fyrrv. bankastjóri …………………. 140.619
Fjölnir Þorgeirsson hestaræktandi ……………………… 138.161
Stefán Logi Magnússon markvörður KR ……………… 54.082
Arnar Gunnlaugsson fjárfestir og fv. knattspm. ….. 148.309
Hörður Torfason söngvari ………………………………….103.531
Gunnar Þórðarson tónskáld ………………………………. 168.936
Hallgrímur Helgason rithöfundur ………………………. 54.410
Guðbjörg Matthíasdóttir skattadrottning …………… 65.278
Þór Saari, fv. þingmaður ………………………………… 129.542
Kjartan Gunnarsson fv. framkv.stjóri Sjálfst.fl. ……. 1.302