Nokkrir fasteignasalar hafa verið með samninga við bankana um að selja eignir á þeirra vegum eftir hrun. Þetta kom fram í þættinum Afsal sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöld.
Rakel Sveinsdóttir ræddi þar við Ásdísi Valsdóttur og Guðrúnu Antonsdóttur, löggilta fasteignasala, um áhrif bankahrunsins á fasteignamarkaðinn. Í þættinum kom fram að Íbúðalánasjóður hefur hins vegar sinnt sölusamningum sínum öðruvísi og boðið þá til allra aðila innan Félags fasteignasala.
Í þættinum kom einnig fram að margir stóðu uppi með tvær eignir í miðju hruni og segja Guðrún og Ásdís það hafa verið hvað erfiðast að standa frammi fyrir fólki sem var nýbúið að skrifa undir sína samninga og skuldbindingar, þegar ,,Guð blessi Ísland” ræðan var flutt fyrir landi og þjóð fyrir réttum sjö árum.
Meira um fasteignamálin í þætti gærkvöldsins sem sjá má hér.