Mun fleiri Íslendingar telja að stjórnmálamenn séu viðriðnir spillingu árið 2018, heldur en 2016. Þetta leiðir könnun Félagsvísindastofnunar í ljós.
Hlutfallslegur fjöldi þeirra sem telur að margir eða nánast allir stjórnmálamenn á Íslandi séu viðriðnir spillingu er mun hærri nú en fyrir tveimur árum. Um það bil 16% svarenda í könnun sem lögð var fyrir um miðjan desember töldu að nánast allir stjórnmálamenn á Íslandi væru viðriðnir spillingu, en aðeins um 5% í könnun árið 2016.
Þá töldu 49 prósent aðspurða að margir stjórnmálamenn séu spilltir nú í ár, en aðeins 29 prósent svöruðu þeirri spurningu játandi árið 2016.
Nánar á
http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/20/margir-stjornmalamenn-islandi-sagdir-vidridnir-spillingu/