Margir minnast þorsteins: „elskið hvert annað [...] fyrirgefið. eigið samverustundir“

Þorsteinn Ingi Sigfússon fæddist í Vestmannaeyjum 4. júní 1954. Útför Þorsteins fer fram frá Hallgrímskirkju í dag. Hann varð bráðkvaddur í Stokkhólmi þann 15. júlí síðastliðinn. Þorsteinn lauk doktorsprófi frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1982 og fékk stöðu sem fræðimaður við Háskóla Íslands að loknu námi. Hann var prófessor í eðlisfræði við HÍ frá árinu 1989. Við stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands árið 2007 var Þorsteinn Ingi ráðinn forstjóri hennar. Árið 2004 var Þorsteinn Ingi sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar og árið 2007 fékk hann rússnesku alheimsorkuverðlaunin, Global Energy Prize, fyrir framlag sitt til vetnismála

\"\"Fjölmargir minnast Þorsteins í Morgunblaðinu í dag. Árni Sigfússon, bróðir Þorsteins og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík segir:

„Hugmyndaauðgi og framkvæmdaþróttur frá fyrstu tíð: Mótun árfarvegar við moldarhaug austur af Kirkjubæjarbraut, sem við skírðum Göngufjall. Þar byggðum við brýr og lögðum hjólavegi, mótuðum árfarvegi, ef skyldi rigna. Úr nokkrum kassafjölum og tjörupappa var byggt stórkostlegt félagsheimili. Það gerði ekkert til þótt það fyki í næstu austanátt, björgunarstarfið var gert að dýrmætri reynslu. Þannig héldu verkefni bróður míns, leiðtogans, áfram og urðu að þátttöku í eldflaugatilraunum á menntaskólaárunum í Hamrahlíð, þroskuðust enn frekar, tengdust koltrefjavinnslu, vetnisframleiðslu og súperkrítískum tilraunum á lághita og háhita með þekktustu vísindamönnum heims [...] Bróðir minn var eins konar Avenger, ofurhetja orðsins, verksins, eðlisfræðinnar og andans.“

Þá segir Árni í lok greinar sinnar:

„Nokkur heilræði til systkina: Elskið hvert annað. Gefið hvert öðru ráð ef sóst er eftir þeim en íklæðist þeim ekki. Fyrirgefið. Eigið samverustundir þar sem góðar rökræður, bros, þakklæti og hjartahlýja fá notið sín. Þannig var samstarf okkar bræðra. Þannig kveð ég minn ástkæra bróður.“ 

 

Ari Trausti Guðmundsson alþingismaður var vinur Þorsteins. Hann segir:

„Mikil söknuður er að Þorsteini Inga gengnum jafn skyndilega og raun ber vitni, glaðbeittum en hógværum og viðmótsþýðum en föstum fyrir. Áberandi persónuleiki var hann hvar sem var og góður vinur vina sinna. Ég átti þess kost að vinna með honum að ýmsu og þá sérstaklega mörgum fræðandi innslögum í sjónvarpsþætti um vísindi og nýsköpun. Þar kom vel fram fundvísi hans á ögrandi og oft mjög nytsöm verkefni og hæfileiki hans til að koma flóknu efni til skila, jafnvel sjá listrænt sjónarhorn til þess að horfa úr og bæta í blöndu fróðleiks og skemmtunar.“

Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi ráðherra segir:

„Þorsteinn Ingi var einn af þeim sem er gott, gefandi og hvetjandi að þekkja. Hann var jákvætt afl í svo mörgum skilningi; sem hlýr og vandaður einstaklingur, traustur og umhyggjusamur fjölskyldumaður og hugmyndaríkur, óhefðbundinn og kraftmikill vísindamaður.

Allar þær fjölmörgu stundir endurspegla eftirminnilegan, lánsaman og ljúfan mann sem var umvafinn einstöku fólki og fjölskyldu.“

Svana Helen Björnsdóttir, skrifar kveðju fyrir hönd Verkfræðingafélags Íslands. Hún segir:

Framlag Þorsteins til vísinda og samstarfs í að miðla tækniþekkingu var mikilsvert. Hann vann að því að vekja athygli ungra verkfræðinga og raunvísindafólks á viðfangsefnum tengdum stóriðju, og kom að því að mennta meistara- og doktorsnema í málmeðlisfræði og málmverkfræði við Háskóla Íslands og nokkrar aðrar háskólastofnanir erlendis. Til varð þekkingargrunnur íslenskra eðlisfræðinga og verkfræðinga sem gagnast stóriðjunni, orkufyrirtækjum og fleirum.

Þorsteinn var einstakur fræðimaður og frumkvöðull og hlotnaðist honum margvíslegur heiður fyrir. Við minnumst Þorsteins með hlýju og vottum fjölskyldu og aðstandendum innilega samúð.“

Þór Jakobsson veðurfræðingur skrifar:

„Þorsteinn Ingi var mikill fjölskyldumaður og ræktaði sinn frændgarð og vinahóp með hlýju og einlægni. Það var sama við hvaða tækifæri það var, hann var alltaf jákvæður, gaf mikið af sér og sýndi mikla væntumþykju. Það hefur veitt okkur mikla ánægju og við erum þakklát fyrir að hafa átt vinskap Þorsteins Inga og Beggu og verið með í mörgum stórfjölskylduveislum hjá þeim í gegnum árin.

Þorsteinn Ingi skilur eftir sig stórt skarð sem erfitt mun verða að fylla. Árangur hans á einstökum starfsferli, þar sem hann skipaði sér í fremstu röð og naut verðskuldaðrar viðurkenningar og virðingar bæði hér á landi og erlendis, var honum og landi okkar til mikils sóma.“