Margir minnast ragnars: „boðinn og búinn að hjálpa og laga“

\"\"Ragnar S. Halldórsson fæddist í Reykjavík 1. september 1929. Hann lést á 7. ágúst 2019 á Landspítalanum í Fossvogi. Hann var sonur Halldórs Stefánssonar, forstjóra og alþingismanns, og Halldóru Sigfúsdóttur. Eftirlifandi kona Ragnars er Margrét Kristín Sigurðardóttir viðskiptafræðingur. Þau hjónin eignuðust fjögur börn

Árið 1966 fór Ragnar til starfa hjá Alusuisse í Austurríki og Sviss og tók við starfi forstjóra ÍSAL í Straumsvík 1969. Því starfi gegndi Ragnar til ársins 1988 en þá tók hann við stjórnarformennsku fyrirtækisins. Ragnar mótaði og lagði grunn að uppbyggingu og starfsháttum stóriðju á Íslandi, enda var álverið í Straumsvík hið fyrsta sinnar tegundar á landinu.

Um dagana gegndi Ragnar fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum og var m.a. og formaður Verslunarráðs Íslands 1982-1986. Þá sat hann í stjórn Hjartaverndar. Fjölmargir minnast Ragnar í Morgunblaðinu í dag. Í þeim hópi eru Hjálmar Gíslason sem stofnaði Datamarket og síðan Rannveig Rist forstjóri Álversins í Straumsvík.

Ragnar var tengdafaðir Hjálmars. Hjálmar skrifar:

\"\"„Ragnar var boðinn og búinn að hjálpa og laga, ekki síst með auknum frítíma. Þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki og vildi fá þangað nettengingu voru svörin þau að bið eftir slíku væri að lágmarki sex vikur. Ragnar fékk veður af þessu og morguninn eftir sótti hann mig snemma og gekk með mig á fund Þórarins V. sem þá var forstjóri Landssímans. Taugatrekktur gat unglingurinn ég rétt stamað upp úr mér hvers kyns var. Ragnar og Þórarinn skiptust svo á nokkrum gamansögum og seinna sama dag var komin blússandi nettenging í fyrirtækið.

Í annað skipti var ég á leiðinni á mikilvægan fund að morgni dags. Ég vakna fyrir allar aldir til að hafa mig til og hef rakstur. Þar sem ég stend yfir vaskinum og renni klippunum í gegnum hárið gefa klippurnar sig. Þarna stend ég með eina rönd rakaða yfir miðjan skallann og er ekki skemmt, síst miðað við skellihlæjandi Möggu Dóru. Hún skýst í símann og nær á pabba sinn áður en hann fer í morgunsundið. Fimm mínútum síðar er álskallinn sjálfur mættur inn á baðherbergisgólf heima hjá okkur með allar græjur til að ég geti lokið verkinu og látið taka mig alvarlega, enda eðli málsins samkvæmt vel græjaður til slíkra verka.

Þá skrifar Rannveig Rist:

Í \"\"dag kveðjum við Ragnar S. Halldórsson, fyrrverandi forstjóra og stjórnarformann álversins í Straumsvík, ISAL. Ragnar var fyrsti forstjóri álvers á Íslandi og jafnframt fyrsti forstjóri ISAL og gegndi því starfi í hartnær 20 ár, eða frá 1969 til 1989.

Ég kynntist Ragnari þegar ég hóf störf hjá ISAL árið 1990 en þá var Ragnar stjórnarformaður fyrirtækisins. Ég starfaði svo nánar með honum í kjölfar þess að ég varð forstjóri árið 1997. Við áttum mikil og góð samskipti þar sem hann leiddi stjórn fyrirtækisins og hann stýrði fundum af röggsemi. Það kom sér vel að hann þekkti bæði fyrirtækið og iðnaðinn vel.

Uppbygging ISAL og gangsetning framleiðslu áls á Íslandi var mjög framandi fyrir landsmenn á sjöunda og áttunda áratugnum. Kalda stríðið stóð sem hæst, íslenska lýðveldið ennþá að slíta barnsskónum, síldin horfin og þorskastríðin í algleymingi. Á þessum umbrotatímum þurfti sterk bein og einbeittan vilja til að byggja upp fyrirtæki sem hafði jafn afgerandi áhrif á framtíðarþróun atvinnulífs á Íslandi og ISAL. Ragnar stóð í stafni ISAL á þeim uppbygginga- og umbrotatímum og skilaði því vel af hendi, þar sem hans persónulegi styrkur naut sín í verki. Stöndum við sem á eftir komum í þakkarskuld við Ragnar fyrir hans framlag við að ryðja brautina fyrir uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Íslandi, sem er nú ein meginstoða íslensks atvinnulífs.

Útför Ragnars fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 2. september 2019, og hefst athöfnin klukkan 13.