Mikið annríki hefur verið hjá lögreglu og björgunarsveitum í nótt á Norðausturlandi. Tugir bílstjóra og farþega lentu í vanda víða vegna snjókomu, hálku og ófærðar. Margir ferðamenn festu bíla sína á Dettifossvegi.
Þjóðveginum frá Mývatni og að Austurlandi hefur verið lokað. Þæfingur er á fleiri vegum á Austur og Norðausturlandi sem ekki hafa lokast.
Mokstur er hafinn á Norðaustur- og Austurlandi en ófærðin er eftirfarandi samkvæmt Vegagerðinni:
Ófært er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Dettirfossvegi, Vopnafjarðarheiði, Hófaskarði, Hálsum. Vatnsskarði eystra, Breiðdalsheiði og Öxi. Þungfært og skafrenningur er á Fjarðarheiði annars er hálka, snjóþekja og éljagangur á láglendi um Norðaustur- og Austurlandi en hálkublettir eru með ströndinni í Djúpavog.