Margir gönguhópar vilja til kulusuk

Ekki er langt síðan að Grænland varð ferðamannastaður. Ferðir voru fyrst farnar til Kulusuk á austurhluta landsins. Þeir sem ferðast til þorpsins eru margir fjallaklifurmenn og hefur ásóknin náð methæðum í sumar meðal óbreyttra göngumanna líka. Göngu- og skokkhópar fara saman í ferðir sem geta verið margra daga langar. Við sjáum myndir á Hringbraut í kvöld frá þessu afskekkta þorpi á stærstu eyju heims sem teknar voru á dögunum. Þar ræðum við líka við Jóhönnu Björk Sveinbjörnsdóttur sem hefur um árabil verið fjallaleiðsögumaður í Kulusuk. Jóhanna er mannfræðingur og þekkir vel þá þróun sem hefur orðið í grænlensku samfélagi, meðal annars hve algengt það er að börn séu tekin af heimilum sínum og sett í fóstur vegna félagslegra vandamála og vanrækslu.