Lögheimilisforeldri barnsins ræður

Mjög margir fráskildir foreldrar hafa valið þá leið að börn þeirra búi til jafns hjá móður og föður. Ef skiptingin er til dæmis vika og vika er algengt að foreldrar geri búsetusamning, þar sem fram kemur í hvaða hverfi foreldrar skuli búa þannig að barnið geti gengið í hverfisskóla og fleira. Þá skipta foreldrar kostnaði jafnt, enda búseta jöfn hjá báðum foreldrum. En eru réttindi þessara foreldra þau sömu? Svarið við þessari spurningu er ,,nei” og um þetta er rætt við Oddgeir Einarsson, hrl hjá Opus Lögmannsþjónustu í Ég bara spyr á Hringbraut í kvöld. Oddgeir segir mikinn mun á því hvaða réttindi foreldrar hafa og í raun er það lögheimilisskráning barnsins sem gildir en ekki þeir samningar sem foreldrar gera sín á milli. Ef lögheimilisforeldri tekur til dæmis ákvörðun um að flytjast á milli hverfa eða í annað sveitarfélag, er ekkert sem hitt foreldrið getur gert. Hér má sjá brot úr viðtalinu við Oddgeir en þátturinn er sem fyrr segir á dagskrá kl.21.30 á sunnudagskvöld.