Margir fordæma viðtalið við jón baldvin

„Hver ber ábyrgð á því að Jón Baldvin Hannibalsson, sem nokkrar konur hafa sakað um kynferðislega áreitni, fær að taka til varna í hálfa klukkustund í Ríkissjónvarpinu? Og hvernig ætlar Ríkissjónvarpið að bregðast við réttmætum kröfum þeirra kvenna, sem Jón Baldvin bar þungum sökum í viðtalinu, að þær fái a.m.k. aðra hálfa klukkustund í Silfrinu til að verja málstað sinn? Enda þótt Jón Baldvin sé þjóðkunnur maður þá er hann ekki lengur í þeirri stöðu í samfélaginu að það réttlæti að stjórnendur Silfursins og Ríkissjónvarpsins láti undan ósk hans um að fá að hvítþvo hendur sínar af ásökunum um kynferðislega áreitni án þess að nokkur þeirra, sem hafa borið hann þessum sökum, geti jafnframt og í sama viðtalsþætti veitt andsvör á móti. Ég veit ekki hvað er satt og hvað er uppspuni í þessu dapurlega máli og játa hreinskilnislega að mér finnst það ekki koma mér nokkurn skapaðan hlut við. En ég leyfi mér að fullyrða að Ríkissjónvarpið er ekki réttur vettvangur til þess að leiða hið sanna í ljós heldur lögregla, saksóknari og dómstólar.“

Þennan pistil skrifar Jón Örn Marinósson, fyrrverandi fréttamaður, varadagskrárstjóri og tónlistarstjóri hjá Ríkisútvarpinu, um viðtal Fanneyjar Birnu Jónsdóttur við Jón Baldvin Hannibalsson í Silfrinu í dag