Margir ferðamenn í tjaldi

 Heimsókn í Fjallakofann: Halldór Hreinsson ræðir þar við Sigmund Erni um jöklaskíðaferðir og fleira og fleira.

 Tjaldsvæðið í Laugardalnum er smá saman að fyllast af gestum. Mörg hundruð manns koma þangað árlega yfir sumartímann og þar er grænt og friðsamt samfélag. Linda Blöndal ræðir við Kolbrúnu Rósu Valsdóttur umsjónamann sem er á vaktinni fimmta sumarið í röð.  

 MAT BAR komst á lista yfir bestu veitingastaði á norðurlöndum nú vor, rétt eftir opnun staðarins.  Guðjón Hauksson veitingamaður á MAT BAR í miðborginni  segir Sigmundi frá ást sinni og aðdáun á Rómarborg - og ítölskum mat og drykk.  

Andri Heið­ar Krist­ins­son og Nína Hjördís Þorkelsdóttir reka nýsköpunarfyrirtækið Travelade. Þetta er vefsíða sem finnur klæðskerasniðið ferðalag fyrir hvern og einn hér á landi – finnur upplýsingar um áhugamál fólks og fleira. Síðan getur aukið dreifingu ferðamanna hér á landi þar sem áhugasvið ferðamanna eru ólík.

Andri Heið­ar er fyrrverandi þróunarstjóri hjá stórfyrirtækinu LinkedIn og starfaði um árabil í Kísildalsnum í Kaliforníu. þar leiddi Andri um 70 manna teymi og stýrði þróun hjá fréttaveitunni (e. newsfeed) og forsíðu Linkedin.com. Auk þeirra Nínu er Hlöðver Þór Árna­son, fyrrum tækni­stjóri Já.­is í teyminu.  http://www.travelade.com/iceland/