Margir blaðamenn kunnugir hótunum

Töluverð viðbrögð hafa orðið í morgun við pistli á hringbraut.is þar sem reyndur blaðamaður, Björn Þorláksson, lýsir afskiptum stjórnmálamannsins Kristjáns Þórs Júlíussonar af því þegar Útvarpsráð Ríkisútvarpsins árið 2002 lýsti blessun yfir ráðningu Björns sem fréttamanns.

Samkvæmt því sem kemur fram í pistlinum lét Kristján Þór Björn vita að hann stæði í þakkarskuld við sig þegar Björn bar upp ágenga spurningu í fréttaviðtali. Leitað hafi verið umsagnar Kristjáns sem þá var bæjarstjóri á Akureyri áður en meirihluti útvarpsráðs, þá skipaður sjálfstæðis- og framsóknarmönnum, blessaði ráðningu Björns til stofnunarinnar árið 2002. Mátti vel túlka orð Kristjáns Þórs þannig að mati Björns að með því að láta vita af þessu hefði verið ýtt undir að fréttamaðurinn færi silkihönskum um viðmælanda sinn og „velgjörðarmann“. Þá var einnig sögð saga af forstjóra Samherja í pistlinum. Hvernig Þorsteinn Már Baldvinsson hefði sagt Birni að hann hefði látið athuga feril hans áður en hann var ráðinn til starfa á Rúv.

Ýmsir blaðamenn hafa rætt efni pistilsins í dag. Þar á meðan Stefán Ásgrímsson, sem lengi starfaði á Tímanum og DV og var um skeið fréttastjóri. Í athugasemd á facebook þar sem pistli Björns var deilt telur fréttastjórinn að þetta hafi ekki aðeins átt við um Sjálfstæðisflokkinn því Stefán skrifar:

„Þetta þekkja margir blaða- og fréttamenn. Hef átt nokkur svona samtöl við menn sem höfðu uppi mis vel ígrundaðar og marktækar hótanir, þeirra á meðal Halldór Ásgrímsson.“