Margaretar thatcher og ronald reagan

Meðal þess sem var rætt í Þjóðbraut á Hringbraut í gær, sunnudag, voru þær miklu breytingar sem eru að verða í stjórnmálum víða um heim. Dr. Herdís Kjerúlf Þorgeirsdóttir lögfræðingur varaði við að lítið sé gert úr þjóðernisflokkum og þjóðernissinnuðu fólki. Það sé fólk sem telja sig hafa verið skilið útundan og það vilji nú fá sitt.

Herdís segir að vissulega megi rekja pólitísk átök samtímans til stjórnartíðar Margaretar Thatcher og Ronald Reagan. Með þeim hafi orðið miklar breytingar á stjórnarháttum og þær hafi enn áhrif og þau muni jafnvel aukast frá því sem nú er.