Hagnaður Marel á þriðja ársfjórðungi nam 26,7 milljónum evra, eða sem nemur 3,7 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð bæting milli ára, en tekjuaukning var um 14 prósent.
Marel hefur nú þrengt skoðun sína við erlenda skráningu á markað við kauphallirnar í Kaupmannahöfn, Amsterdam og London, en félagið verður síðan einnig skráð á Íslandi eins og hingað til.
Þá hyggst félagið fara í hlutafjáraukningu meðfram skráningu, og hefur hlutahafafundur verið boðaður í félaginu 22. nóvember þar sem lagðar verða fram tillögur til samþykktar.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-10-31-marel-skodar-skraningu-i-kaupmannahofn-amsterdam-eda-london/