Marel birti í gær uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung, en samkvæmt honum eykst hagnaður félagsins um tæp 50% miðað við í fyrra auk þess sem tilkynnt var að fyrirtækið muni kaupa þýska framleiðslufyrirtækið MAJA Maschinenfabrik. Þetta kemur fram í tilkynningu Kauphallarinnar.
Tekjur félagsins uxu milli annars ársfjórðungs 2018 og 2017 úr 272,7 milljónum evra í 291,1 milljón. Samhliða því jókst hagnaðurinn einnig töluvert, eða úr 18,6 milljónum evra í fyrra upp í 29,5 milljónir í ár. Hagnaðaraukning milli ára nam því 60%, en hagnaður á hlut á öðrum ársfjórðungi var 4,31 evrusent. Ef miðað er við núverandi gengi gjaldmiðla nam hagnaður félagsins 3,6 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu, sem samsvarar 5,3 króna hagnaði á hlut.
Nánar á
https://kjarninn.is/frettir/2018-07-25-marel-eykur-hagnad-og-kaupir-thyskt-fyrirtaeki/