Marel á leið í kauphöllina í amsterdam

Marel verður skráð á markað í Euro­next kaup­höll­ina í Amster­dam í Hollandi innan níu mán­aða, en valið stóð að lokum milli kaup­hall­anna í Amster­dam og Kaup­manna­höfn. Félagið verður tví­skráð, bæði á Íslandi og í Holland­i. 

Um þetta var upp­lýst á aðal­fundi Marel sem nú stendur yfir í höf­uð­­stöðvum félags­­ins í Aust­­ur­hruni í Garða­bæ. 

Marel er lang­sam­lega verð­mætasta félagið í kaup­höll Íslands en félagið hækk­aði um 1,3 pró­sent á mark­aði í dag, í 2,2 millj­arða króna við­skipt­um, og hefur hækkað um 35 pró­sent frá ára­mót­um.

Nánar á

https://kjarninn.is/frettir/2019-03-06-marel-leid-i-kauphollina-i-amsterdam/