Már Guðmundsson bankastjóri Seðlabanka Íslands sýnir atvinnurekendum gula spjaldið með ummælum sínum í dag þess efnis að þeir séu farnir að lofa kjarabótum umfram það sem fyrirtæki í landinu og allt hagkerfið ráði við.
Stýrivaxtaákvörðun Seðlabamnkans var kynnt í dag, þess efnis að vesxtornir héldust óbreyttir í 4,5 prósentum, en við það tækifæri talaði Seðlabankastjóri til aðila vinnumarkaðarins og þó sérstaklega vinnuveitenda sem hann taldi að væru komnir út á ystu nöf loforða um kjarabætur í samfélaginu.
Verðbólga í landinu hefur verið undir markmiðum Seðlabankans um dágóða hríð - og raunar má tala um hreina og klára verðhjöðnun síðustu mánuði ef húsnæðiskostnaður er undanskilinn vísitölunni, en hagfræðingar Seðlabankans segja hagkerfið engu að síður viðkvæmt, tuga prósenta launahækkanir sem jafnvel Samtök atvinnulífsins séu farin að gefa undir fótinn með geti gert ríkjandi stöðugleika að engu; vissulega ráði sterkustu fyrirtækin við all nokkrar launahækkanir en ef horft sé yfir allt sviðið kunni samningar af því tagi sem SA sé í þann mund að bjóða upp á að gera fjölda fyrirtækja svo erfitt fyrir að það hafi í för með sér miklar uppsagnir starfsfólks og þar með aukið atvinnuleysi. Það sé varla nokkur ávinningur fyrir launafólk í landinu og hagkerfið í heild sinni.