Már varar við frekari hækkun krónunnar

Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði á ársfundi Seðlabankans í gær að nokkuð hefði dregið úr hættu á ofhitnun þjóðarbúskaparins frá því sem var fyrir um ári síðan. Góður gangur í efnahagslífinu hefði gert kleift að lækka vexti um 0,75 prósentustig en nú hefði hagvöxtur minnkað frá hátoppinum 2016.

„Búhnykkirnir sem gerðu okkur mögulegt að vaxa hratt og halda verðbólgu lítilli á sama tíma eru nú að fjara út. Hækkun gengis krónunnar átti stóran þátt í að laga þjóðarbúið að þessum búhnykkjum,“ sagði Már en varaði við frekari hækkun krónunnar. „Nú er hins vegar svo komið að umtalsverð frekari hækkun raungengis væri áhættusöm.“

Már sagði líka að líta þyrfti „raunsæjum augum“ á hugsanlega frekari lækkun vaxta.

„Vextir eru um þessar mundir lágir hér á landi í sögulegu samhengi, sérstaklega að teknu tilliti til hagsveiflunnar. Verðtryggðir vextir ríkisbréfa hafa með einni skammlífri undantekningu aldrei verið lægri og verðtryggðir vextir íbúðalána eru í sögulegu lágmarki. Frá því vextir Seðlabankans urðu mikilvægt stjórntæki bankans í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar hafa þeir aldrei verið lægri ef frá er skilið stutt tímabil snemma á þessum áratug þegar Ísland var á allt öðrum stað í hagsveiflunni en það er nú. Það þarf því að horfa á það raunsæjum augum hvort vænta megi frekari lækkunar vaxta ef ekki myndast beinlínis slaki í þjóðarbúinu. Vextir Seðlabankans á komandi mánuðum og misserum ráðast af framvindunni og í því efni getur brugðið til beggja vona.“

Ársfundarræða Más í heild er hér.