Már hvetji óbeint til þess að stjórn sitji

Seðlabankastjóri Már Guðmundsson hefur í viðtölum í morgun sagt að aldrei gefist betri tími til haftalosana en einmitt í sumar.
Hringbraut hefur rætt við tvo þingmenn stjórnarandstöðunnar sem segja að með þessum málflutningi seðlabankastjóra muni pressa á kosningar strax e.t.v. minnka. Enda tæki smátíma fyrir nýja ríkisstjórn að hefja samtal með fulltrúum kerfisins og embættismönnum og sérfræðingum.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ítrekað talað fyrir því að vinnu við haftalosun þurfi að ljúka sem fyrst. Þótt margir telji óheppilegt að Bjarni leiði þá vinnu á grunni aðildar hans að Panamaskjölunum, segja fulltrúar minnihlutans sem vilja ekki koma fram undir nafni vegna þessarar umræðu, að Már hafi veitt forystumönnum stjórnarflokkanna vopn með ummælum sínum. Að ummæli Más kunni að leiða til þess að öldur hjaðni í samfélaginu.
Eigi að síður sé krafa um kosningar í haust.