Dagana 20. og 21. apríl verður vorfundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (International Monetary and Financial Committee, IMFC) haldinn. Að venju fer fundurinn fram í Washington. Fulltrúi Norður- og Eystrasaltslandanna á fundinum að þessu sinni verður Már Guðmundsson seðlabankastjóri.
Sjá hér beina tengingu í hið skriflega ávarp Más Guðmundssonar.