Enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu Bandalags háskólamanna og Félags hjúkrunarfræðinga við viðmsemjendur sína hjá ríkinu eftir að það slitnaði upp úr fundi samninganefndanna seint í gærdag.
Útlit er fyrir margra daga verkfall í viðbót því fulltrúar BHM og hjúkrunarfræðinga segja einfaldlega engan vilja til samninga af hálfu ríkisvaldsins. Samninganefndinrnar funduðu í sex tíma í gær og var þar haldið áfram með umræðu um punkta sem samninganefnd ríksins lagði fyrir fulltrúa BHM hjá ríkissáttasemjara í gær.
„Það stefnir í neyðarástand á Landspítalanum í haust, ekki vegna verkfalla, heldur vegna þess að það sem við óttuðumst mest er orðið að veruleika,“ segir Páll Halldórsson formaður samninganefndar BHM. „Mannskapurinn er á förum.“
Í yfirlýsingu frá BHM kemur fram að tillögum bandalagsins til lausnar deilunni hafi verið hafnað líkt og öllum öðrum tillögum. Samningsvilji ríkisins sé enginn þótt BHM hafi samþykkt að semja til fjögurra ára. Verulegrar reiði og óþreyju sé farið að gæta hjá félagsmönnum en þriðjungur geislafræðinga á LSH hefur nú sagt upp störfum. Fjöldi ljósmæðra og dýralækna hefur einnig sótt um störf á öðrum Norðurlöndum.
Á meðan þessu vindur fram ítreka bæði Landlæknir og forstjóri Landspítalans að ástand þar innandyra sé á þann veg að ekki sé lengur hægt að tryggja öryggi sjúklinga.
Líkur á lögum á verkföllin fara dagvaxandi.
Hjúkrunarfræðingar funda enn hjá ríkissáttasemjara, en fundurinn í dag er sá fyrsti frá því að upp úr viðræðum slitnaði á föstudaginn. Sá fundur hefur staðið yfir síðan klukkan korter yfir tvö í dag.