Mannréttindardómstóll evrópu tekur kæru ólafs ólafssonar til skoðunar - „vó alvarlega að orðspori mínu og æru“

Kæra Ólafs Ólafssonar, eins af aðaleigendum Kaupþings, hefur verið tekin til skoðunar af Mannréttindadómstól Evrópu. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Lagði Ólafur fram kæru til dómstólsins vegna skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, sem var birt árið 2017. Skýrslan fjallaði um einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003 og aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að kaupum á bankanum.

Í skýrslunni kemur fram skýr og afdráttarlaus niðurstaða að Hauck & Aufhäuser hafi aldrei fjárfest í Búnaðarbankanum. Er því haldið fram í skýrslunni að það hafi í raun verið fyrirtækið Welling & Partners, félag sem er skráð á Tortóla á Bresku Jómfrúareyjunum. Ólafur kærði niðurstöðu skýrslunnar til Mannréttindardómstólsins í Evrópu árið 2017. Samkvæmt kæru Ólafur telur hann málsmeðferðina jafngilda sakamáli og segir í kærunni að hann hafi ekki notið réttinda sakbornings eins og lög kveða á um. Ólafur segir einnig að skýrslan hafi vegið alvarlega að orðspori sínu.

„Vinna og birting á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vó alvarlega að orðspori mínu og æru án þess að ég hefði nokkurt tækifæri til að koma við vörnum eða nýta þau réttindi sem við teljum sjálfsagt að fólk, sem borið er þungum sökum af hálfu stjórnvalda, njóti. Þótt skýrslan hafi verið skrifuð undir því yfirskini að varpa ljósi á 15 ára gamalt mál fólust í henni alvarlegar og einhliða ásakanir á mig sem í engu eru réttlætanlegar.“

Einnig segir hann að engum blekkingum hafi verið beitt við kaup á Búnaðarbankanum.

„Í þessari einhliða árás á mig var ekkert tillit tekið til þess að ríkið tók á sínum tíma hæsta tilboði í opnu söluferli, kaupverðið var greitt að fullu og engum blekkingum var beitt.“