Mannrækt í kvöld, þriðja skrefið

Jógakennarinn Guðni Gunnarsson heldur áfram vegferðinni til farsældar í þættinum Mannrækt á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld, en þættirnir hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir afslappaðan og uppbyggjandi fróðleik um ræktun hugar og hjarta.

Þriðja skrefið verður tekið í kvöld, en að baki eru athygli og ábyrgð - og nú er það sjálfur tilgangurinn: Hann er forsenda hamingju, innblásturs og ástríðu sem er hvati sýnarinnar; hún er umgjörð markmiða sem gerast í augnablikinu svo mannfólkið njóti ferðalagsins, ljómandi.

Mannrækt byrjar klukkan 20:00 í kvöld.