Mannrækt í kvöld, fyrsta skrefið

Fyrsta skrefið af sjö til farsældar verður tekið í þættinum Mannrækt á Hringbraut í kvöld, en þar leiðir lífsstílsráðgjafinn Guðni Gunnarsson Sigmund Erni - og áhorfendur um land allt - í allan sannleika um mikilvægi þess að rækta sinn innri mann.

Þættirnir eru átta að tölu, en í fyrsta þættinum, sem frumsýndur var fyrir viku, fjölluðu þeir Guðni og Sigmundur um eðli mannræktar og hvaða vegferð biði áhorfenda á næstu vikum.

Og það tapar enginn á að horfa á þessa þætti, svo mikið er víst, enda snúast þeir um að velja sig, vilja sig og njóta sín svo maður geti fremur hampað sjálfum sér fremur en að hafna sér.

Og fyrsta skrefið er sumsé tekið í kvöld, athyglin, að vera til staðar, vita af sér, leggja ástundun á veru fremur en fjarveru - og það vefst ekki fyrir helsta frumkvöðli Íslendinga í þessum efnum að útskýra það á mannamáli.

Mannrækt byrjar klukkan 20:00 í kvöld.