Sjónvarpsþættirnir Mannrækt halda áfram göngu sinni á Hringbraut í kvöld, en þar mun jógakennarinn og lífsstílsfrumkvöðullinn Guðni Gunnarsson taka fjórða skrefið til farsældar með áhorfendum sínum.
Þættirnir hafa vakið athygli fyrir efnismikið inntak en þar miðlar Guðni af áratugalangri reynslu sinni, jafnt á Íslandi og í Ameríku ,hvar hann var ráðgjafi um árabil. Sjö skrefa kerfið hans nýtur bæði vinsælda og virðingar, en fróðleikinn er meðal annars að finna í bókum Guðna, Máttur athyglinnar og Máttur viljans.
Og nú verður fjórða skrefið tekið, en að baki eru athyglin, ábyrgðin og tilgangurinn - og það er heitbindingin sem nú er til umfjöllunar, sjálfur kaleikur trúverðugleikans og varanlegrar velsældar, eða eins og Guðni orðar það sjálfur: \"Um leið og þú lofar þér til fulls tekur almættið og orkan þig alvarlega og heimild þín til velsældar hámarkast.\"
Mannrækt byrjar klukkan 20:00 í kvöld.