Mannrækt: annað skrefið tekið

Fræðsluþættirnir Mannrækt halda áfram á Hringbraut í kvöld en þar fræðir jógakennarinn Guðni Gunnarsson áhorfendur um það hvernig þeir geta tekið skrefin sjö til farsældar í lífi sínu.

Í fyrsta þættinum, sem frumsýndur var fyrir tveimur vikum fóru þeir Guðni og þáttastjórnandinn Sigmundur Ernir yfir helstu atriði mannræktar sem Guðni hefur kennt með góðum árangri á Íslandi og Ameríku um áratugaskeið, en í síðasta þætti fyrir viku tóku þeir svo fyrsta skrefið til farsældar, athyglina; að vera til staðar fyrir sjálfan sig.

Í þætti kvöldsins verður ábyrgðin tekin fyrir - og það er forvitnilegt að fylgjast með Guðna ræða hvernig  manneskjan getur einmitt tekið ábyrgð á sjálfri sér, einmitt með því að vilja sig, velja sig, njóta sín - og svo ræðir hann tilganginn í næstu viku, sem er þriðja skrefið á vegferðinni sem fram undan er í þessum einstöku þáttum sem allir ættu að græða jafnt andlega og líkamlega á.

Mannrækt byrjar klukkan 20:00 í kvöld.