Mannleg þjáning er ekki einkamál

Það hefur verið hæðst að því og talað um ,,aumingjavæðingu” þegar fólk kemur fram og ræðir vandamál sín, t.d. þunglyndi og sjálfsvíg.

En séra Bjarni Karlsson segir í þættinum ,,Fólk með Sirrý” á Hringbraut í kvöld að við séum að lifa áhugaverða tíma í þjóðfélagsumræðunni. ,,Heilbrigðir hlutir eru að gerast. Sumir kalla þetta aumingjavæðingu og hæðast að þessu en við erum að taka það sem hefur verið talið prívat eins og mannlega þjáningu og opna það og ræða,” segir Bjarni og bætir við ,,Það er ekkert einkamál þess sem hugsar að hann sé einskis virði lengur.”

Í þættinum segir Salný Sif Júlíusdóttir Hammer frá því hvernig henni var bargað eftir að hafa reynt að taka sitt eigið líf. Hún er móðir ungar telpu sem fékk stærstu gjöf lifsins þegar móður hennar var bjargað, að mati Bjarna Karlssonar. Salný Sif hafðu reynt að fá aðstoð heilbrigðiskerfisins vegna þunglyndis en fékk ekki næga aðstoð fyrr en eftir að hún reyndi að fyrirfara sér. Jóhanna María Eyjólfsdóttir aðstandandi segir líka sína sögu og hvers vegna hún vill opna umræðuna og ganga úr myrkrinu í ljósið eins og samtökin Pieta Ísland ætla að gera að nóttu til 7.mai. Markmiðið er að safna fyrir hjálparmiðstöð í sjálfsvígsforvörnum og sjálfsskaða. Skráning í gönguna og nánari upplýsingar áwww.pieta.is

Þátturinn hefst kl. 20 og er endursýndur kl. 22. Hér má sjá sýnishorn úr þættinum.