Mannleg mistök í mælingum

Orkurannsóknir ehf í Helguvík sendu í gær frá sér fréttatilkynningu vegna mengunarmælinga í Helguvík.

Þar er fjallað um orsök fyrri mæliskekkju Orkurannsókna, aðallega á arseni, þar sem há og óútskýrð gildi höfðu mælst og leiddu til ótta og mjög sterkra viðbragða.

Í tilkynningunni segir að Orkurannsóknir hafi farið yfir bæði gögn og verkferla við sýnasöfnun en sænska fyrirtækið ALS Global, sem annast úrvinnslu og greiningar á þeim sýnum sem Orkurannsóknir safna, hafi einnig farið yfir sína ferla. Við skoðun hjá ALS komu í ljós mannleg mistök innan fyrirtækisins sem leiddu til þess að sýnin sem send voru til Svíþjóðar voru greind með fimmfalt hærra magn málma en raun var“ segir í tilkynningu Orkurannsókna ehf.

Sænska fyrirtækið harmar mistökin og áréttar að farið verði yfir verkferla til að fyrirbyggja frekari mistök í framtíðinni. Styrkur arsens í andrúmslofti við Helguvík er því vel undir umhverfismörkum.

Orkurannsóknir er sjálfstæð eining innan Keilis sem veitir rannsóknarþjónustu og ráðgjöf fyrir atvinnulíf á nærliggjandi svæði, til dæmis á sviði efnagreininga, rannsókna á endurnýjanlegri orku og sjálfstýringartækni ásamt ýmiskonar sérhæfðri þjónustu sem gagnast nýsköpunarfyrirtækjum og þróunar- og hátækniiðnaði.

Orkurannsóknir vinna í nánu samstarfi við tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis.