Í þættinum Ferðalagið í gærkvöldi ræddu Sigmundur Ernir og Linda Blöndal við fjölbreyttan hóp fólks um ferðamál ýmis konar.
Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og Snorri Baldursson formaður Landverndar koma til umræðu um manngerða ferðamannastaði. Hvar er æskilegt að setja brýr og leggja stíga á ósnortinni náttúru? Hve langt má maðurinn ganga til að bjóða ferðamenn velkomna og að hvaða mörkum náttúruperlanna? Simgundur Ernir ræðir þetta við hina góðu gesti.
Ferðafréttir eru á sínum stað og Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri segir frá dæmalausri leikferð til Rússlands. Einnig segir Íris Sveinsdóttir frá heillandi aðventuferðum til Wiesbaden en Íris bjó í Þýskalandi í 20 ár.
Háhitasvæði Reykjanessins verður æ vinsælla hjá bæði innlendum og erlendum ferðamönnum. Linda hitti Rannveigu Lilju Garðardóttur, eða Nanný, sem hefur 16 ára reynslu af því að fara með ferðamenn um svæðið. Linda mælti sér mót við Nanný við Gunnuhver, einn vinsælasta stað Reykjanessins.
Ferðalagði er á dagskrá öll fimmtudagskvöld klukkan 22:00. Umsjón með Ferðalaginu hafa Linda Blöndal og Sigmundur Ernir.