Mannfjöldi eftir bakgrunni

Hinn 1. janúar 2017 voru 35.997 innflytjendur á Íslandi eða 10,6% mannfjöldans. Innflytjandi er einstaklingur sem er fæddur erlendis og á foreldra sem eru einnig fæddir erlendis. Einnig báðir afar og báðar ömmur.

Þetta er fjölgun frá því árið 2016 þegar innflytjendur voru 9,6% landsmanna eða 31.812. Fjölgun þeirra heldur því áfram.

Frá árinu 2012 hefur innflytjendum fjölgað úr því að vera 8,0% mannfjöldans í að vera 10,6% mannfjöldans. Frá þessu er sagt í frétt frá Hagstofu Íslands.

rtá