Hvenær verða Íslendingar þá ein milljón? Það telst vera harla ólíklegt að Íslendingar nái því að verða ein milljón talsins í fyrirsjáanlegri framtíð. Til þess að verða ein milljón talsins þarf eitthvað stórkostlegt að breytast. Annað hvort að búferlaflutningar til landsins stór aukist eða að frjósemi lansmanna rjúka upp úr öllu valdi. Eða þá að meðalævilengd aukist mjög mikið. Líkast til þyrftu þessi þrír þættir að fara saman til þess að Íslendingum fjölgi um þau 657 þúsund sem nú vantar upp á til að ná einni milljón en það mundi varla duga til. Sennilegra er að þróunin á Íslandi verði sú sama og í flestum Evrópulöndum þar sem langtímaspár gera ráð fyrir að íbúum muni fækka frekar en fjölga og er minni frjósemi megin ástæða þess.
Til að íbúafjöldi á Íslandi haldist í jafnvægi þarf hver kona að eignast fleiri en tvö börn sé ekki tekið tillit til búferlaflutninga. Stjórnvöld gætu samt á einhverju tíma ákveðið að opna landið fyrir nýbúum frá Afríku og Asíu með kostaboðum. Árið 2050 verða íbúar Afríku um tveir milljarðar og íbúar Asíu rúmir fimm milljarðar. Náttúruhamfarir og styrjaldir gætu komið miklu róti á íbúa þessara tveggja heimsálfa. Þá gætu flóttamenn einfaldlega komið hingað óboðnir þúsundum saman fyrir tilstilli nágranna okkar sem myndu knýja Ísland til að taka við þeim. Þá er ekki hægt að bægja frá þeirri hugsun að Evrópa tapi stríði og sigurvegararnir skikki Evrópu til að taka við milljónatugum nýbúa.
Nánar www.visindavefur.is www.hagstofa.is