Flughálka er á götum og gangstéttum Akureyrar þennan morguninn. Eftir hlákukafla síðustu daga hefur fryst á ný og liggur svell yfir hluta vega- og gatnakerfis.
„Það er manndrápsglæra,“ sagði foreldri leikskólabarns á Akureyri sem átti í mestu vandræðum með að komast leiðar sinnar frá bifreið og inn á leikskóla í morgun. Sums staðar hefur sandur verið borinn á svell á gangstéttum en misbrestur er víða á því. „Maður kemst lítið úr stað án mannbrodda.“
Annað foreldri sem Hringbraut ræddi við segist hafa verið óþgilega nálægt því að lenda í árekstri. „Ég hemlaði á rauðu ljósi og það gerðist ekki neitt. Bara ekki neitt, bíllinn bara skautaði á svellinu en annar bíll náði að sveigja frá og bjargaði mér.“
Ökumenn eru hvattir til að spritta dekk sín til að auka grip. Ökumenn bíla sem ekki eru fjórhjóladrifnir ættu að fara sérlega varlega í „manndrápsglærunni“ sem teygir sig víða um land eftir hlýindakaflann um helgina.