Manndráp rannsakað við miklubraut

Karlmaður er í haldi lögreglunnar, grunaður um  manndráp á heimili geðfatlaðs fólks við Miklubraut í gærkvöld, en mikill viðbúnaður lögreglu var á svæðinu fram eftir nóttu.

Óvissa ríkir um aðdraganda málsins og verst lögregla fregna að svo stöddu, að öðru leyti en því að íbúi búsetukjarna fyrir geðfatlaða við Miklubraut hafi þar fundist látinn og staðfestur grunur liggi fyrir um hver hafi ráðið honum bana. Fyrstu fregnir benda þó til þess að áflog í húsinu hafi leitt til verknaðarins sem hér um ræðir.

Hinn látni látni, sem var um sextugt bjó í hús­inu og meint­ur ger­andi einnig.

Mikill viðbúnaður var á vettvangi sem fyrr segir; þrjár sjúkrabifreiðar voru á staðnum og fjöldi lögreglubíla og var svæðið allt í grennd girt af.